Tinna Gunnarsdóttir vöruhönnuður og prófessor við Hönnunardeild Listaháskóla Íslands hefur undirritað samstarfsamning við FÓLK um útgáfu hönnunar Tinnu alþjóðlega.
Tinna er prófessor við Hönnunardeildar Listaháskóla Íslands. Hún er með Mastersgráðu í iðnhönnun frá Domus Academy á Ítalíu, Listrannsóknarmaster frá Brighton og stundar nú doktorsnám í menningarfræði við Háskóla Íslands. Hún hefur starfað sem fagstjóri og prófessor við vöruhönnun við Listaháskóla Íslands í áratug. Tinna hefur setið í fjölda stjórna og dómnefnda, hún hefur skrifað greinar og bókakafla, ritstýrt og átt sæti í ritnefndum. Tinna hefur hlotið fjölda viðurkenninga og styrkja fyrir verk sín og verk eftir hana eru í eigu íslenskra og erlendra lista- og hönnunarsafna. Tinna hefur tekið þátt í fjölda hönnunarsýninga, hér heima og erlendis.
Tinna nýtir hönnunarrannsóknir og nytjahluti hversdagsins til að skoða umhverfi sitt, hvort sem það varðar einkarými heimilisins eða í náttúrulegu samhengi. Hún setur efni og tækni í óvæntar aðstæður og skapar þannig fersk sjónarhorn, útvíkkaða upplifun, skemmtilega afbakað samhengi. Íslenskt landslag hefur haft stór áhrif á meðvitund hennar og rýmisskilning en þeim miðlar hún í gegnum efnislæga hluti.
”Það er mikill fengur fyrir okkur hjá FÓLKi að hefja samstarf við Tinnu. Tinna hefur byggt upp afar áhugaverðan feril á sviði hönnunar yfir lengri tíma en kemur þó stöðugt með ferska nálgun og sýn á efnisheiminn. Við hlökkum til að vinna með henni að frekari þróun á íslenskri hönnun á næstunni,” segir Ragna Sara Jónsdóttir, stofnandi og listrænn stjórnandi FÓLKs.