Það var sérstök útgáfa af Lifandi hlutum - kertastjökum og blómavösum úr íslenskum steini, sem urðu fyrir valinu að þessu sinni. Þessi sérstaka útgáfa er úr náttúrulegu íslensku hráefni en hvert eintak er einstakt og handgert á Íslandi. Vörulínan Lifandi hlutir eru hannaðir af Ólínu Rögnudóttur vöruhönnuði fyrir FÓLK en Ólína vinnur út frá upplifunarhönnun, sjálfbærni og umhverfi.
Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands eru veitt árlega þeim námsmönnum sem hafa unnið framúrskarandi starf við úrlausn verkefnis sem styrkt var af Nýsköpunarsjóði námsmanna sumarið áður. Verðlaunin voru fyrst veitt árið 1996.
Við óskum verðlaunahöfum innilega til hamingju með árangurinn.