Heimsending og ferill pantana:
FÓLK Reykjavík sendir frítt heim á Íslandi ef pantað er fyrir meira en 15.000 kr.
Þegar neytandi verslar í vefverslun FÓLK Reykjavík er hægt að velja á milli þess að sækja í verslun eða fá pöntunina senda.
Þegar valið er að fá vöruna heimsenda eða á næsta pósthús er sendingartími að jafnaði 2-5 virkir dagar nema annað sé tekið fram. Sendingartími er þó mismunandi eftir því hvar neytandi býr, valinni sendingarleið ásamt því að hátíðabundið álag getur haft áhrif á þennan tíma.
Utan höfuðborgarsvæðis er heimsending einungis í boði á þeim svæðum sem Pósturinn býður upp á. Nánari upplýsingar á postur.is.
Þessir skilmálar gilda einungis fyrir heimsendingu innanlands.