Við í FÓLKi erum fyrsta fyrirtækið til að nýta aukinn veruleika (e. Augmented Reality) hér á landi í vefverslun okkar.
Nú er hægt með aðstoð tækninnar að máta íslensku hönnunarvörurnar okkar í rýmið heima, snúa þeim og færa og skoða vöruna gaumgæfilega.
Hljómar eins og eitthvað sem gerist bara í The Matrix - en við mælum með því að prófa - sjón er sögu ríkari.
Virkar í nýjum snjallsímum, meðal annars iPhone og Samsung.
Vefurinn er unnin á Shpify og af íslenska fyrirtækinu KoiKoi og hönnunarstofunni Undireins.