Í tilefni af hönnunarmars árið 2019 tók sænska tímaritið RUM viðtal við stofnanda FÓLK um samfélagsábyrgar áherslur fyrirtækisins og hvernig er að reka hönnunarfyrirtæki á Íslandi.
Bandaríska hönnunartímaritið Dwell Magazine fjallaði um hliðarborð sem Jón Helgi Hólmgeirsson hefur hannað fyrir FÓLK sem er meðal annars framleitt úr endurunnum ullarafgöngum. Í umfjöllun á vef Dwell er vörunni lýst sem einni af þeim 5 bestu árið 2020 þegar kemur að umhverfisvænni hönnun.
Í jólablaði Bo Bedre er umfjöllun um hliðarborð sem Jón Helgi Hólmgeirsson hannaði fyrir FÓLK. Það úr endurunnu stáli, endurunnum textíl og FSC vottuðum við.
Verkefnið er tilraun til að draga úr magni efnisafganga sem endar í landfyllingum eða er brennt og er því frábært dæmi um verkefni sem skapar jákvæð áhrif hringrás hráefna.
Fjallað var um Urban Nomad hillurnar, sem Jón Helgi Hólmgeirsson hannaði fyrir FÓLK, í Home Decor. Umsögnin var ekki af verri endanum:
“The epitome of classy, eco-friendly functionality” Home & Decor