Inka línan er klassísk íslensk hönnun. Varan er endingargóð og hefur lifað gegnum fleiri kynslóðir.
Form Inka einkennist af tveim ferningum, tengdum saman með láréttri línu sem skapa form sófans og stólsins.
Gunnar Magnússon er eitt af stærstu nöfnunum í íslenskri hönnunarsögu og húsgögn hans hafa vakið athygli á alþjóðlegum vettvangi. Inka línan er ein af tímalausu og klassísku vörulínum hans, og sú fyrsta sem FÓLK hefur endurútgefið.
Vörulínan er upprunalega hönnuð árið 1962 og FÓLK hefur nú hafið endurútgáfu á vörum Gunnars, í samræmi við sjálfbærni- og hringrásaráherslur fyrirtækisins.
Náttúruleg & endurunnin hráefni
Allar vörur framleiddar í Evrópu
Frí heimsending á Íslandi yfir 15.000 kr.
Á þessari vefsíðu eru notaðar vafrakökur til þess að tryggja sem besta mögulega upplifun notenda. Lestu meira