Leit

Húsgögn

Smærri hlutir

Ljós

FÓLK Vörulisti 2023

Sögur af FÓLKi

Innblástur

Umfjöllun um FÓLK

Það er ekkert efni komið. Bættu við efni í þennan reit með því að nota hliðarstikuna.

Image caption appears here

Add your deal, information or promotional text

Það er ekkert efni komið. Bættu við efni í þennan reit með því að nota hliðarstikuna.

Image caption appears here

Add your deal, information or promotional text

Hlutverk hönnunar í grænu byltingunni

Það er sannarlega jákvætt að sjá fjárfesta og fyrirtæki uppgvöta nauðsyn þess að hrinda verði af stað tafarlaust svokallaðri grænni umbyltingu. Nú nýverið spáði Larry Fink, forstjóri BlackRock eignastýringar því að einhyrningar (vaxtarmestu sprotafyrirtækin) næsta áratugar muni vera á sviði tækni í þágu loftslagsins. Hann spáir gríðarlegri aukningu á fjárfestingum í þessum málaflokki. Þrettán íslenskir lífeyrissjóðir hafa sömuleiðis nýverið skrifað undir viljayfirlýsingu um að fjárfesta fyrir um 580 milljarða króna í verkefnum sem tengjast hreinni orku og umhverfisvænum lausnum fram til ársins 2030. Nýverið ákváðu Samtök iðnaðarins jafnframt að tileinka árið 2022 grænni iðnbyltingu til þess að vekja athygli á mikilvægi grænna umskipta.  

Við þessi tíðindi er áhugavert að kafa dýpra og spyrja sig hvað þarf til að ná árangri í grænni umbreytingu. Til að byrja með er mikilvægt að átta sig á að þessi græna umbylting mun ekki eingöngu gerast með tæknilegri nýsköpun nokkura einhyrninga eins og stundum má skilja af fyrirsögnum og umræðu. Það væri frábært ef tæknibreytingar gætu bjargað heiminum, en umbreytingin sem þarf að eiga sér stað þarf að vera mun breiðari. Við höfum búið yfir umhverfisvænni tækni á mörgum sviðum í langan tíma en samt hefur lítið gerst í því hvernig við tileinkum okkur þá tækni. Til að ná árangri þurfa tæknibreytingar, hönnun, lífsstíll og sameiginlegt átak allrar hlekkja í virðiskeðjunni allt frá hönnun til áhuga og vals neytenda að koma saman.

80% af umhverfisáhrifum vöru eru ákvörðuð í hönnunarferlinu

Ef við skoðum vöruþróun og tækifærin þar til að stuðla að grænni umbreytingu þá sýna rannsóknir að um 80% af umhverfisfótspori vöru er ákvarðað í hönnunarferlinu. Snjöll vöruhönnun þar sem sóun hráefna er lágmörkuð, ending hámörkuð og hugsað er fyrir auðveldri endurvinnslu getur nú þegar haft mjög mikil áhrif á kolefnisfótspor og orkunýtingu.

Hringrásarvæn hráefni sem endurnýta úrgang á virðisaukandi hátt eru þegar farin að koma fram í auknum mæli. Það er jákvætt, ekki nóg að skapa hringrásarvæn hráefni með nýrri tækni, mikilvægt er að finna nýjum hráefnum réttan farveg í umhverfisvænni lausnum sem standast samkeppni og eru valin af neytendum. Þar kemur hönnunarferlið sterkt til sögunnar þar sem hráefnin er prófuð og hönnuð til að fara í réttan framtíðarfarveg sem hefur jákvæð áhrif. Ekki má heldur gleyma mikilvægi ákvarðana neytenda og stjórnenda fyrirtækja þegar kemur að því að breyta hegðun sinni og velja umhverfisvænar lausnir í stað þeirra sem hafa hátt umhverfis- eða kolefnisfótspor. Sameiginlegt verkefni allra aðila er að skipta út gamalli hönnun og framleiðsluferlum í umhverfisvænni vörur með markmið um kolefnishlutleysi að leiðarljósi.

Fjárfestingar eru mjög mikilvægar til að hafa áhrif á þróun framtíðarinnar. Val á fjáfestingum mun miklu máli skipta bæði fyrir áhrif fjárfestinganna og ávöxtun fjármagnseigenda. Mikilvægt er að átta sig á að ekki er nóg að breyta einum hluta keðjunnar til að ná árangri í grænu byltingunni, til þess þurfa margir samverkandi þættir og vilji að koma saman. Um er að ræða endurhönnun á ferli heimsins sem verður gerð með hjálp tækni og vali okkar allra um breytingar.

Greinin er eftir Rögnu Söru Jónsdóttur, stofnanda FÓLK og birtist á Vísir.is 22.02.2022

Leit