Bo Bedre var með umfjöllun um FÓLK og íslenska hönnun í september útgáfu sinni. Fjallað var um hliðarborð sem hannað er af Jóni Helga Hólmgeirsyni og púða hannaða af Studio Fléttu sem endurunnir eru úr loftpúðum úr bílum. Auk þess er viðtal við Rögnu Söru Jónsdóttur, stofnanda og listrænan stjórnanda FÓLKs um áherslur fyrirtækisins.