Hönnun frá FÓLK Reykjavík var valin til að prýða suðurstofu Bessastaða næstu þrjú árin. Um er að ræða samstarfsverkefni Samtaka iðnaðarins, Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs og Forseta Íslands um að kynna íslenska hönnun.
Fjórir hlutir frá FÓLK voru valdir á sýninguna, Lifandi hlutir sem Ólína Rögnudóttir hannaði, Composition borðljós hannað af Theodóru Alfreðsdóttur, Multi vasar eftir Rögnu Þórunni Ragnarsdótturr og Urban Nomad endurunnið textílborð eftir Jón Helga Hólmgeirsson.
Íva Rut Viðarsdóttir, innanhússarkitekt, valdi húsgögnin og munina úr þeim tillögum sem bárust frá hönnuðum og framleiðendum og skipulagði rýmið. Við valið var haft í huga að sýna þá miklu fjölbreytni sem einkennir íslenskt handverk og hönnun, auk þess sem litið var til sjálfbærni og hringrásarhugsunar.