Leit

Húsgögn

Smærri hlutir

Ljós

FÓLK Vörulisti 2023

Sögur af FÓLKi

Innblástur

Umfjöllun um FÓLK

Það er ekkert efni komið. Bættu við efni í þennan reit með því að nota hliðarstikuna.

Image caption appears here

Add your deal, information or promotional text

Það er ekkert efni komið. Bættu við efni í þennan reit með því að nota hliðarstikuna.

Image caption appears here

Add your deal, information or promotional text

Endurframleiðslu byltingin

Markmið FÓLKs er að hanna fyrir sjálfbærara nútímalíf, styðja hringrás og minni áhrif innanhúshönnunar á umhverfið. Endurframleiðslubyltingin er rétt að hefjast og sú bylting er samofin kjarna hlutverks og stefnu FÓLKs. 

Byltingin gerist ekki í einrúmi heldur í góðu samtali milli neytenda, hönnuða og framleiðenda. Við sækjumst eftir því að vinna með framleiðendum sem gert hafa ný umhverfisvæn hráefni og hönnum vörur með hringrás hráefna sem sérstakt markmið. 

Hliðarborðið úr endurunnu efni er hannað af Jóni Helga Hólmgeirssyni. Það er samsett úr endurunnum ullarplötum, endurunnu stáli og FSC vottuðum sjálfbærum við. Það er sett saman á nokkrum mínútum með tveimur skrúfum. 

Það var mikill heiður og viðurkenning, fyrir Jón Helga og FÓLK, að bandaríska hönnunartímaritið Dwell valdi borðið sem eina af 5 bestu endurunnu vörunum árið 2020. Hér Nánar um umfjöllun Dwell má sjá hér.

Endurunnu ullarplöturnar sem notaðar eru í vörunni koma frá danska fyrirtækinu Really CPH. Really framleiðir plöturnar úr gömlum afgöngum eins og fötum, sjúkrahúslökum og ýmsum afskurði efnisframleiðslu frá móðurfélaginu Kvadrat og fleirum. Verkefnið er tilraun til að draga úr magni efnisafganga sem endar í landfyllingum eða er brennt og er því frábært dæmi um verkefni sem skapar jákvæð áhrif hringrás hráefna. 

Endurunna hliðarborðið er í framleiðslu og er væntanlegt seinni hluta árs 2020. Sjá nánar um vöruna hér.

 

Leit