Það er gaman að segja frá því að íslenska hönnunarvaran Loftpúðinn
hefur verið tilnefndur til Green Product Awards 2024. Þetta eru mjög
góðar fréttir fyrir íslenska hönnun og hringrásarhagkerfið en púðarnir
eru eingöngu gerðir úr afgangshráefni frá mismunandi iðnaði.
Yfir 1500 umsóknir bárust og er Loftpúðinn einn af 22 innanhússvörum
sem hljóta tilnefningu.
Tilnefningar voru tilkynntar í Berlín í gær og gefst almenningi nú kostur
á að kjósa bestu vöruna til 14.janúar næstkomandi.
Þessi alþjóðlega tilnefning bætist við fyrri verðlaun Loftpúðans en hann
var í Nóvember sl. útnefndur "Vara ársins" á Hönnunarverðlaunum Íslands.
Loftpúðinn er samstarfsverkefni FÓLKs og Fléttu. Hann er hannaður af
Stúdíó Fléttu fyrir vörumerkið FÓLK, og er afgangshráefni frá iðnaði og
fyrirtækjum notað í púðann. Nánast allt hráefni sem notað er í Loftpúðann
hefði annars endað í landfyllingu eða verið brennt en fær nú framhaldslíf.
Púðarnir eru, eins og nafnið gefur til kynna, gerðir úr loftpúðum úr bílum
og fleiri afgangshráefnum, meðal annars er fylliefnið afgangsefni úr
úlpuframleiðslu íslenska tískumerkisins 66Norður.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem fjallað er um Loftpúðann alþjóðlega en
umfjöllun um hann hefur birst í leiðandi hönnunartímaritum og fjölmiðlum
eins og Elle Decor, Vogue, Frankfurter Allgemeine og Le Monde.
Meira um Loftpúðann hér
About the Green Product Award
Since 2013, the international Green Product Award has been honoring
products and services that stand out in terms of design, innovation and
sustainability. In cooperation with the IKEA Stiftung, the Green Concept
Award evaluates concepts by young designers and supports their further
development.
E-Mail: presse@gp-award.com Tel. + 49 30 25742-883