Urban Nomad vörulínan
Hirslur sem getur þjónað mörgum hlutverkum en eru fullkomnlega endurvinnanlegar var hugmyndin sem lagt var af stað með við hönnun Urban Nomad vörulínunnar.
Útkoman hefur slegið í gegn enda passa hillurnar í öll herbergi heimilisins, hvort sem er ein eða margar saman, krókarnir og slárnar hjálpa til við að gera hverja og eina einstaka.
Nú nýverið var svo gólfhillunni bætt við þar sem formin minna bæði á art-deco stíl eða tíunda áratuginn, en stigahandrið voru Jóni Helga hugleikin þegar hann hannaði gripinn.
Hillurnar eru úr endurunnu stáli og sjálfbærum FSC vottuðum gegnheilum aski.