Leit

Húsgögn

Smærri hlutir

Ljós

FÓLK Vörulisti 2023

Sögur af FÓLKi

Innblástur

Umfjöllun um FÓLK

Það er ekkert efni komið. Bættu við efni í þennan reit með því að nota hliðarstikuna.

Image caption appears here

Add your deal, information or promotional text

Það er ekkert efni komið. Bættu við efni í þennan reit með því að nota hliðarstikuna.

Image caption appears here

Add your deal, information or promotional text

FÓLK endurútgefur hönnun Gunnars Magnússonar heiðursverðlaunahafa Hönnunarverðlauna Íslands 2021

FÓLK Reykjavík og Gunnar Magnússon, sem hlaut heiðursverðlaun Hönnunarverðlauna Íslands, hafa undirritað samning um endurútgáfu og einkarétt á útgáfu hönnunar Gunnars og kynningar og markaðssetningar á hönnunarverkum hans og arfleifð næstu árin.  FÓLK mun þróa vörur Gunnars til endurútgáfu í samstarfi við Gunnar og fjölskyldu með sjálfbærni og hringrás hráefna að leiðarljósi.

Eitt af stóru nöfnum íslenskrar hönnunarsögu 

Gunnar Magnússon þekkja margir Íslendingar sem eitt af stóru nöfnunum í íslenskri hönnunarsögu. Hönnun Gunnars vakti mikla athygli á erlendri grundu og vann hann í samstarfi við nokkra af fremstu hönnuðum Dana eins og Borge Mogensen auk þess að ná góðum árangri í alþjóðlegum hönnunarsamkeppnum á sjöunda áratug síðustu aldar. Hann snéri með fjölskylduna aftur til Íslands árið 1964 þar sem hann stofnaði eigin teiknistofu og vann í fjóra áratugi að fjölmörgum verkefnum fyrir fjölskyldur og fyrirtæki, bæði hlutum og stærri verkefnum til dæmis fyrir Hótel Holt, Kennaraháskólann, Alþingi og banka.

”Það er til marks um gæði hönnunar Gunnars hvað hún stenst vel tímans tönn. Hún er skýrt framlag Íslendinga til Norrænnar hönnunarhefðar síðustu aldar sem nýtur enn í dag mikillar hylli á heimsvísu. Það er því mjög spennandi að fá tækfæri til að endurútgefa hana í samræmi við okkar áherslur um sjálfbærni og hringrás hráefna ” segir Ragna Sara stofnandi og listrænn stjórnandi FÓLKs.

Ljósmyndir: Vigfús Birgisson

Leit